Félag kvenna í lögmennsku
FKL var stofnað 4. mars 2004.
70 konur í stétt lögmanna voru stofnfélagar en á fyrsta fundi félagsins var Guðrún Erlendsdóttir, frv. lögmaður og hæstaréttardómari, kjörin heiðursfélagi.
Tilgangur félagsins er að efla samstarf og styrkja stöðu kvenna í lögmannastéttinni. FKL hefur staðið fyrir námskeiðum, fundum og tengslafundum. Á aðalfundi FKL vorið 2013 var Svala Thorlacius hrl. kjörin heiðursfélagi.
Í stjórn FKL árið 2024-2025 eru:
- Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður hjá EVA legal, formaður.
- Auður Björg Jónsdóttir lögmaður JA lögmönnum.
- Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður hjá Lögfræðistofu Selfoss
- Rebekka Ósk Gunnarsdóttir lögmaður hjá OPUS lögmönnum.
- Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður hjá Lagaþingi
Varastjórn:
- Erna Aradóttir lögmaður hjá Hafnarfjarðarbæ.
- Eva Huld Ívarsdóttir lögmaður hjá Huld lögmannsstofu.
Upplýsingar um FKL
FKL er aðili að EWLA, European Women Lawyers Association, sjá heimasíðu EWLA
Greinar um konur í Lögmannablaðinu
- Sif Konráðsdóttir: "Stofnun félags kvenna í lögmennsku". Lögmannablaðið, 1.tbl. 2004 (bls. 27)
- Eyrún Ingadóttir og Guðrún Björg Birgisdóttir: "Þar sem peningar eru þar eru konur ekki - konur í lögmennsku" Lögmannablaðið 4. tbl. 2004
- "Stofnun FKL hefur haft mikil áhrif" Viðtal við Sif Konráðsdóttur. Lögmannablaðið 4.tbl. 2004 bls. 17.
- Margrét Gunnlaugsdóttir: "Félag kvenna í lögmennsku: Hguarflug og tengslafundur" Lögmannablaðið 4. tbl. 2006 (bls. 31)
- Ragnhildur Benediktsdóttir: "Kvenlögfræðingar í fortíð, nútíð og framtíð", Lögmannablaðið 2.tbl. 2007 (bls. 22)
- "Árlegur fundur kvennafélaga", Lögmannablaðið 4. tbl. 2007, (bls. 18)
- Katrín Theodórsdóttir: "Endast konur skemur í lögmennsku en karlar?" Lögmannablaðið 1. tbl. 2010 (bls. 30)
- Þyrí Steingrímsdóttir: "Mikil þörf fyrir FKL", Lögmannablaðið 2. tbl. 2010 (bls. 22)
- "Kjarnakonur í FKL" Lögmannablaðið 3. tbl. 2010 (bls. 25)
- Þyrí Steingrímsdóttir: "Félag kvenna í lögmennsku minnist aldarafmælis: Auður Auðuns, frumkvöðull og fyrirmynd" Lögmannablaðið 2. tbl. 2011 (bls. 24)
- Marta Margrét Ö.Rúnarsdóttir: "Svala Thorlacius hrl. heiðursfélagi FKL" Lögmannablaðið, 2.tbl. 2013 (bls. 28)
- Sigurður Örn Hilmarsson: "Stöðnun kynjahlutfalls félagsmanna LMFÍ" Lögmannablaðið 1. tbl. 2022 (bls. 4)
Úr starfi félagsins
Skipuleggjendur ásamt heiðursgestum og forseta Alþingis. F.v. Bergþóra Ingólfsdóttir, Vala Valtýsdóttir, Dögg Pálsdóttir, Auður Þorbergsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir, Guðrún Erlendsdóttir, Sólveig Pétursdóttir, Katrín Theodórsdóttir og Margrét Gunnlaugsdóttir.
F.v. Ragnhildur Helgadóttir, Guðrún Erlendsdóttir og Auður Þorbergsdóttir.
Kvenlögfræðingar í fortíð, nútíð og framtíð.
16. mars 2007 hélt Félag kvenna í lögmennsku ráðstefnu til að heiðra þrjá brautryðjendur kvenlögfræðinga, þær Auði Þorbergsdóttur fv. héraðsdómara, Guðrúnu Erlendsdóttur fv. hæstaréttardómara og Ragnhildi Helgadóttur fv. ráðherra og alþingismann. Þær voru í hópi fimm fyrstu kvennanna sem útskrifuðust úr lagadeild Háskóla Íslands. Á ráðstefnunni var einnig fjallað um stöðu kvenlögfræðinga fyrr og nú. Nánar má lesa um ráðstefnuna á bls 22 í Lögmannablaðinu 2/2007, sjá hér
Sameiginlegur tengslafundur
Sameiginlegur fundur ásamt félögum kvenna í endurskoðun, læknisfræði og verkfræði var haldinn í Orkuveitunni 23. nóvember 2006.
Ráðstefnan Konur - völdin - lögin var haldin árið 2005 en FKL tók þátt í henni.
Fyrsta stjórn FKL
Í fyrstu stjórn félagsins voru kjörnar Sif Konráðsdóttir hrl., formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir hdl., Kristín Edwald hdl., Margrét Einarsdóttir hdl. og Svala Thorlacius hrl. Varamenn voru kjörnir Hjördís E. Harðardóttir og Inga Þöll Þórgnýsdóttir. Hér eru f.v. Svala, Kristín, Hjördís, Inga Þöll og Sif.