Ferill máls hjá úrskurðarnefnd lögmanna
- Kvörtun berst.
- Þeim sem kvörtun beinist gegn (varnaraðila) er gefinn kostur á að skila greinargerð um efni kvörtunarinnar.
- Þeim sem kvartaði (sóknaraðila) er gefinn kostur á að svara greinargerð varnaraðila.
- Varnaraðila er gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum við svar sóknaraðila.
- Mál tekið til úrskurðar.
Úrskurðarnefnd lögmanna heldur fundi að jafnaði einu sinni í mánuði, að undanteknum júlí og ágúst.