Ný stjórn kosin á aðalfundi LMFÍ 2024

Aðalfundur Lögmannafélags Íslands fór fram í gær, 29. maí.

Nýr formaður er Stefán Andrew Svensson lögmaður á Juris en auk hans voru Hildur Ýr Viðarsdóttir lögmaður á Landslögum og Sigrún Helga Jóhannsdóttir lögmaður hjá VÍS kosnar í stjórn. Fyrir eru Eva Halldórsdóttir lögmaður hjá LLG lögmönnum og Magnús Hrafn Magnússon lögmaður hjá Sigurjónsson & Thor í stjórn.

Varamenn í stjórn voru kosin: Auður Björg Jónsdóttir lögmaður hjá JA lögmönnum, Gísli Guðni Hall lögmaður hjá Mörkinni og Guðmundur Ingvi Sigurðsson lögmaður hjá LEX lögmannsstofu.