Grunnnámskeið í notkun gervigreindar - 26. febrúar 2025 - fjarnámskeið
Á þessu grunnnámskeiði verður farið yfir hvernig lögfræðingar geta nýtt sér gervigreindina í störfum sínum. Hver eru tækifærin og hverjar eru takmarkanirnar? Hvað er ChatGPT og hver er munurinn á ChatGPT og öðrum lausnum? Þátttakendur eru beðnir um að taka með sér tölvur. Námskeiðið verður haldið þrisvar sinnum, þar af einu sinni í fjarfundi, en takmarkaður fjöldi kemst á hvert þeirra. Þetta námskeið, miðvikudaginn 26. febrúar, verður haldið í fjarfundi.
- Kennari Berglind Einarsdóttir lögfræðingur með sérhæfingu í upplýsingatæknikerfum og gervigreind, eigandi Bentt.
- Staður Fjarnámskeið
- Tími 2 Alls 3 klst. Miðvikudagur 26. febrúar 2025, kl. 13:00-16:00.
- Verð Kr. 25.200,- fyrir félaga í félagsdeild LMFÍ, kr. 33.600,- fyrir félaga í LMFÍ og LÍ en kr. 42.000,- fyrir aðra.
Skráning