Námskeið fyrir matsmenn 1. og 2. október 2024

Lögmannafélag Íslands og dómstólasýslan standa fyrir námskeiði fyrir dómkvadda matsmenn. Farið verður yfir hlutverk matsmanna og starf þeirra frá dómkvaðningu og þar til þeir skila matsgerð og/eða mæta fyrir dóm. Þá verður farið yfir ákvæði einkamálalaga sem varða störf matsmanna og samningu matsgerða, undirbúning matsfunda, uppsetningu matsgerða og störf á vettvangi. Í lokin verður boðið upp á heimsókn í Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem héraðsdómari mun upplýsa nánar um samskipti dómkvaddra matsmanna við dómstólana og svara spurningum. 

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa verið matsmenn eða vilja gefa kost á sér sem matsmenn fyrir dómi á sínu sérsviði, s.s. iðnaðarmönnum, tæknifræðingum, verkfræðingum, læknum, lögfræðingum,  sálfræðingum, viðskiptafræðingum og endurskoðendum.  

Með námskeiðinu fylgja ítarlegar leiðbeiningar fyrir dómkvadda matsmenn sem jafnframt hafa að geyma áhugaverða dóma sem snúa að störfum matsmanna.  

  • Kennari   Viðar Lúðvíksson lögmaður hjá Landslögum. 
  • Staður     Fundarsalur Safnaðarheimilis Neskirkju, við Hagatorg, 107 Reykjavík.
  • Tími          Alls 6,5 klst. Þriðjudagur 1. okt. kl. 13.00-16.00 og miðvikudagur 2. okt. 13.00-15.30.  Tímasetning heimsóknar, fyrir þau sem vilja, í Héraðsdóm Reykjavíkur verður auglýst síðar. 
  • Verð        Kr. 55.000,-  Greiðsla námskeiðsgjalds, kr. 55.000,-, verður að hafa borist fyrir lok föstudags 30. sept. inn á reikning 334-26-1207, kt. 450269-2209.

Skráning hér :

gata, póstnr. og staður

 

 

Vefkökur

Við notum vefkökur til að bæta vefinn.