Skiptastjórn þrotabúa - 14. og 16. janúar 2025
Farið verður yfir feril skipta þrotabúa frá skipun til skiptaloka. Lögð verður áhersla á starf og meginskyldur skiptastjóra og þau praktísku álitaefni sem koma upp við skipti þrotabúa, s.s. fyrstu aðgerðir skiptastjóra, meðferð og ráðstöfun veðsettra og óveðsettra eigna, skuldajöfnuð og aðkomu kröfuhafa að málefnum þrotabús. Þá verður fjallað um meðferð krafna og ágreiningsmála, riftun ráðstafana, úthlutun og lok gjaldþrotaskipta.
- Kennari: Þorsteinn Einarsson lögmaður hjá Forum lögmönnum.
- Staður: Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík.
- Tími: Alls 8 klst. (2x4). Þriðjudagur 14. janúar og fimmtudagur 16. janúar 2025. kl. 13.00-17.00.
- Verð: Kr. 48.000,- fyrir félaga í félagsdeild LMFÍ, kr. 64.000,- fyrir félaga í LMFÍ og LÍ en kr. 80.000,- fyrir aðra.
Skráning: