Upplýsingaskylda vegna innherjaupplýsinga – 4. febrúar 2025

Fjallað verður um upplýsingaskyldu skráðra útgefenda vegna innherjaupplýsinga samkvæmt Markaðssvikareglugerð ESB (MAR) sem var innleidd í íslenskan rétt árið 2021.  

Farið er m.a. yfir tímamark upplýsingaskyldunnar, möguleika til að fresta birtingu upplýsinganna og fyrirhugaðar breytingar á MAR varðandi tímamark upplýsingaskyldunnar. Umræddar breytingar voru samþykktar í október 2024 og eru hluti af svokölluðum skráningarpakka ESB (Listing Package Act) sem er ætlað að fá fleiri fyrirtæki til að skrá sig á markað á Evrópska efnahagssvæðinu. Leitast verður við að hafa umfjöllunina praktíska fyrir lögmenn og aðra sem starfa á fjármálamarkaði. Farið er yfir helstu atriði í löggjöfinni og vikið að ýmsum fordæmum sem fjalla um upplýsingaskylduna.  

Að loknu námskeiði verður sótt um að það teljist til endurmenntunar fyrir prófnefnd verðbréfaviðskipta.

  

  • Kennari  Dr. Andri Fannar Bergþórsson dósent við lagadeild HR og lögmaður hjá ADVEL lögmönnum. Andri er höfundur bókarinnar What is Market Manipulation? An Analysis of the Concept in a European and Nordic Context sem gefin var út af Brill Publishing árið 2018. Bók Andra og Aðalsteins E. Jónassonar Verðbréfamarkaðsréttur I: Markaðir og viðskipti með fjármálagerninga er væntanleg í desember 2024. 
  • Staður     Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík.  
  • Tími           Alls 2 klst. Þriðjudagur 4. febrúar 2025 kl. 11.00-13.00.  
  • Verð    Kr. 18.000,- fyrir félaga í félagsdeild LMFÍ, kr. 24.000,- fyrir félaga í LMFÍ og LÍ en kr. 30.000,- fyrir aðra.   

Skráning:

gata, póstnr. og staður
Veldu það sem við á





Afbókun og persónuupplýsingar

Afbókun á námskeið þarf að berast í síðasta lagi daginn áður. Upplýsingar um þátttakendur verða einungis notaðar til að auðvelda þjónustu við þá. Með skráningu samþykki ég skilmála félagsdeildar LMFÍ um afskráningu á námskeið og vinnslu persónuupplýsinga

 

Vefkökur

Við notum vefkökur til að bæta vefinn.